![]() |
Víkings hlaðvarpiðLanguage: is Genres: Sports Contact email: Get it Feed URL: Get it iTunes ID: Get it |
Listen Now...
Hverfisfélagið eins og kirkja
Friday, 26 June, 2026
Í síðasta þætti Meðal fólks á Rás 1 var fylgst með undirbúningi stærsta leiks sumarsins í Bestu deild karla, þegar Víkingur tók á móti Knattspyrnufélagi Reykjavíkur síðasta þriðjudag.Sverrir Geirdal, varaformaður knattspyrnudeildar Víkings, segir að mikið hafi verið gert til að fá fólk á völlinn sem hafi ekki brennandi áhuga á fótbolta. Félagið geti í dag gegnt því hlutverki sem kirkjan gegndi áður fyrr.Fyrir hvern fótboltaleik vinna tugir sjálfboðaliða tímum saman til að undirbúa allt sem þarf að undirbúa. Í síðasta þætti Meðal fólks var fylgst með undirbúningi stærsta leiks sumarsins í Bestu deild karla, þegar Víkingur tók á móti Knattspyrnufélagi Reykjavíkur síðasta þriðjudag.Þátturinn var fyrst fluttur á Rás 1 og er því endurfluttur hér á hlaðvarpi Víkinga. Þökkum RÚV fyrir heimsóknina ❤️🖤






