allfeeds.ai

 

Þungarokksþátturinn - Stokkið í eldinn  

Þungarokksþátturinn - Stokkið í eldinn

Language: is

Genres: Music, Music Commentary, Music History

Contact email: Get it

Feed URL: Get it

iTunes ID: Get it


Get all podcast data

Listen Now...

067: MESHUGGAH (Gísli Sigmundsson, Stefán Magnússon, Smári Tarfur)
Episode 67
Friday, 20 November, 2026

Moonstone Tattoo Reykjavík kynnirMikið hefur verið skrifað um Umeå (Svíðþjóð) sveitina MESHUGGAH... Sennilega hefur verið skrifað meira um þá - á skemmri tíma (síðan Metallica) -  en nokkra aðra hljómsveit (miðað við höfðatölu!) og var áhrifa Svíana knáu farið að gæta svo víða (og gerir enn) að annað eins hafði ekki heyrst síðan tja, aftur, Metallica. Í eina röndina er MESHUGGAH hljómsveit tónlistafólksins. Þeir geta líka verið dálæti grúskara og gagnrýnenda. Og þrátt fyrir að hljóma stundum eins og skilaboð úr vítis-víddinni í Event Horizon og í ljósi þess að akademískar greiningar og klók tónfræði og handanheima taktpælingar hljómsveitarinnar hafi verið tekin fyrir í ritrýndum rannsóknum á háskólastigi þá hefur tónlistin átt greiða leið að hjarta hvaða þungarokkara sem er og er "bolurinn" þar ekki undanskilin. Þá erum við vitaskuld að tala um smekkvísa boli. Alltént!Þungarokksþátturinn Stokkið í eldinn naut fulltingis Gísla Sigmunds (Sátan, Sororicide, Bastarður o.fl.), Stebba hressa (Eistnaflug, sundkennsla) og Smára McTurfs (Patronian, Son Of The Wind, Dr. Brainwash o.fl.) er gasprað var af ákefð um fyrirbærið MESHUGGAH; áhrif og afrek þess.Tónlist í þættinumFJALLSBUR - Eternal Freeze (2026). Einyrkjaverkefni Sigurboða Grétarssonar.Við minnum fólk á að fylgja Stokkið í eldinn á Instagram og Facebook! Ef þið getið verið svo elskuleg að fylgja þættinum í þeim hlaðvarpsforritum sem þið notið, gefið okkur einkun og mælið með við vini ykkar.Stokkið í eldinn styður SÁTUNA; þungarokkshátíðina í Stykkishólmi. Sjáumst á Sátunni 2027!Stokkið í eldinn styður STÍGAMÓT (sjálfshjálparmiðstöð fyrir karla og konur sem beitt hafa verið kynferðisofbeldi og vilja öðlast bætt lífsgæði). Hvetjum hlustendur til að styrkja Stígamót með því að gerast mánaðarlegur styrktaraðilar.Þessi þáttur er í boði Moonstone Tattoo Reykjavik hvar Stokkið í eldinn fær húðflúrin sín. Gæði út í gegn, topp fólk (Emii, Mery, Sædís, Gunnar, Skarpi, Isa og Nika) fjölbreyttar nálganir og stílar; flash tattoo eða flúr gerð alveg sérstaklega handa þér og eftir þínu höfði. Við lofum bestu húðflúrupplifuninni í bænum.Moonstone Tattoo Reykjavik er í Vegmúli 2, Reykjavík. Sláið á þráðinn 779 4547 eða sendið skilaboð á Facebook eða Instagram.

 

We also recommend:


Radio Música Tradicional

L'orgue dans tous ses états
Julien Girard

Fans On The Run: A Podcast Made By, For And About Beatles Fans
Ethan Alexanian

LA MÚSICA,YO Y USTEDES
Maria elena Del angel ramirez

Ff
Mian Faiz Rasool

Idalva Rodrigues
Idalva Rodrigues dos Santos Rodrigues

Top 100 Charts
Naija PlayStore

Zwei Nasen tanken Metal
Marc Fischer, Ingo Klein

Trance Talk - Dein Podcast über Psytrance, Spiritualität, Musikmarketing & Social Media mit WAYOFDK
WAYOFDK

Jose Zaragoza - The Hype Sessions
Jose Zaragoza - The Hype Sessions

History of Rock
Kastar

Renaissance Soul
Kelly Frazier